Hvað er þetta!!

Gengur ekkert allt of vel hjá mér.  Borðaði smá nammi í gær og í fyrradag.  Er samt búin að æfa ágætlega.  Skellti mér á vigtina í morgun og var búin að þyngjast um nokkur hundruð grömm Devil

En það þýðir ekkert að gefast upp.  Er reyndar aldrei þessu vant að fara út að borða tvö kvöld í röð.  Er að fara að skella mér á tónleika í kvöld og svo í nudd og dekur á morgun.  Ohh, hvað þetta er erfitt líf Wink

Eina leiðinlega við þetta er það að ég er að kvefast.  Þetta bregst ekki, alltaf þegar byrjar að hlýna í veðri þá kvefast ég.  Ætla því að sleppa æfingunni í kvöld og frekar slappa af fyrir kvöldið.  Vonandi verð ég síðan góð á morgun þannig að ég get notið þess að láta dekra við mig.


Byrjuð aftur

Æfði heima í gær.  Ferlega var ég ánægð með mig þegar ég náði að standast freistinguna og fékk mér ekkert nammi í gærkvöldi.  Á alveg fullt af súkkulaði í skápnum síðan að eiginmaðurinn kom frá útlandinu um daginn.  Eftir æfinguna sleppti ég namminu og fékk mér appelsínu.  Þó að þetta hafi ekki verið neitt sérstaklega mikið þá var ég svo ferlega ánægð að hafa náð að sleppa þessu, er nefnilega búin að vera að borða nammi upp á hvert kvöld undanfarnar vikur.

Finn síðan fyrir smá harðsperrum núna sem mér finnst alveg æðislegt.  Ætla síðan að fara á æfingu með liðinu sem ég er að æfa hjá og svitna vel þar í kvöld.  Hlakka mikið til Smile


I´m back!!

Jæja þá er ég frá og með deginum í dag byrjuð aftur.  Steig á vigtina í morgun eftir tæplega tveggja mánaða pásu og var mjög stressuð.  Hélt að ég væri komin í svona 85 kg en sem betur fer var hún aðeins betri við mig og sagði 81,7 kg.  Hélt að vigtin væri eitthvað biluð því ég finn að ég er búin að fitna og vakti því eiginmanninn og lét hann stíga á vigtina líka.  Þar sem hann mældist alveg eðlilegur trúi ég nú tölunni.

Málið er að ég er búin að vera í algjöru rugli með mataræðið mitt.  Stundum borðaði ég ekkert í kvöldmat og fékk mér í staðinn popp og nammi um kvöldið.  Mjög heilbrigt ég veit!!

Ég er reyndar búin að vera að hreyfa mig ágætlega síðustu mánuði.  Reyndar voðalega lítið heima við eins og venjulega.  Í staðinn fór ég að æfa íþrótt sem ég gerði þegar ég var ung og það er ferlega gaman.  Síðan er ég búin að vera að keppa á mótum og svona og gekk bara mjög vel.  Er líka búin að vera svakalega stressuð í tengslum við þessi mót.  Skil ekkert í mér að stressast svona mikið upp.  Ætla reyndar að halda áfram að æfa en taka mataræðið í gegn.  Líður ekkert vel þegar ég er að borða svona illa.  Langar svo mikið til að komast undir 80 kg aftur, mig langar nefnilega ekkert til að vera áttatíuogeitthvað lengur!!


Smá ástand

Er ekkert búin að vera að gera síðan á fimmtudaginn í síðustu viku og borða mun meira en venjulega.  Ástæðan eru mikil veikindi á heimilinu.  Þurfti að fara með dóttur mína upp á Barnaspítalann þar sem við erum búin að vera síðustu daga.  Frekar erfitt að einbeita sér að halda sér í formi þegar svona ástand er á börnunum manns.  Ekkert eins erfitt og horfa upp á barnið sitt vera kvalin af verkjum og það er ekkert sem þú getur gert og engin ástæða finnst fyrir verkjunum.

En sem betur fer líður henni betur núna, byrjuð að borða og er líkari sjálfri sér.  Vigtaði mig á laugardaginn og var búin að þyngjast um 0,6 kg frá síðustu vigtun og var 80,3 kg.  Ætla að byrja að æfa á fullu aftur á morgun, tekur örugglega einhverja daga að jafna sig á því að hafa tekið svona pásu.  Er alls ekkert hætt, þurfti bara að taka smá fjölskylduleyfi.


Gleði, gleði

Átti ekki von á því en ég náði mér undir 80 kg í morgun.  Vigtin sagði 79,7 kg sem er lækkun um 1,2 kg frá síðustu viku.  Gaman að vera komin aftur í sjötíuogeitthvað.

Nammidagur í dag og þá ætla ég að gera eitthvað sérstaklega skemmtilegt með fjölskyldunni.  Hlakka til Smile


Vikan á enda

Sjæse, hvað þessar vikur eru alltaf fljótar að líða núna.  Búin að vera ágæt vika svosem, allavega hreyfingarlega séð.  Mér finnst ég ekkert hafa staðið mig neitt brjálæðislega vel í mataræðinu.  Fékk mér nammi á laugardaginn og svo hef ég verið af og til að fá mér nokkrar saltpillur inn á milli.

Vona að ég hafi misst eitthvað en það kemur í ljós á morgun þegar ég stíg á vigtina.  Verð samt ekkert brjálæðislega hissa þó að ég hafi bætt á mig, vona bara að það hafi ekki komið mikið tilbaka.

Góða helgi Smile


Spinning

Fór í spinningtíma í gær og það var bara æðislegt.  Ekkert smá skemmtilegur tími og frábær tónlist.  Mér finnst það skipta svo miklu máli að það sé skemmtileg tónlist.  Finnst ekkert voðaleg gaman að vera í tíma þar sem er tónlist sem er eiginlega ekki tónlist, bara taktur.  Er eitthvað svo svakalega gamaldags með það.

Síðast þegar ég fór í spinningtíma var ég ca 17 kg þyngri og ég fann það alveg núna.  Var ekki að deyja eftir tímann eins og ég átti von á en þó var ég búin að taka mjög vel á því.  Á örugglega eftir að fara oftar í þessa tíma.  Eina sem ég hef yfir að kvarta eftir þetta en átti alveg von á því er það að ég er að drepast í rassinum Tounge


Letilíus í blogginu

Hvað er í gangi eiginlega!!  Maður er bara ekkert að standa sig í þessu bloggi hérna.  Ætla ekkert að fara að hætta þessu neitt, ætla að halda þessu áfram á meðan ég er í átakinu.

Steig á vigtina á laugardaginn og hún sagði 80,9 kg sem ég er mjög sátt við.  Allt semsagt á uppleið (eða niðurleið á vigtinni!!).

Er venjulega að æfa á mánudögum og frídagur á þriðjudögum en var eitthvað voðalega erfið í gærkvöldi, leið frekar illa.  Á svona daga inn á milli þar sem mér finnst ég ekki geta gert neinn skapaðan hlut.  Ætla því í staðinn að skella mér í spinning tíma í dag, eftir vinnu.  Hlakka mikið til, meira en ár síðan ég fór í spinning síðast.  Vona að ég deyji ekki í tímanum!!


Gengur ágætlega

ÉG verð að viðurkenna að það var svolítið erfitt að byrja aftur.  Fór á "ofurtækið" mitt í hálftíma á mánudagskvöldið og var alveg að deyja eftir það.  En þetta hlýtur að koma eftir smá tíma.

Mataræðið gengur líka ágætlega.  Hef ekkert verið að snakka neitt á kvöldin fyrir utan að ég hef fengið mér nokkrar saltpillur tvö kvöldin.  Ef ég næ að halda því í lágmarki er ég ánægð.

Ætla svo að taka almennilega á því í kvöld, fara á tækið og lyfta síðan á eftir.  Fínt að svitna smá yfir sjónvarpinu Tounge


Nýtt ár

Gleðilegt ár allir saman.  Hafði það alveg rosalega gott yfir jólin.  Át á mig gat og slappaði af.  Er ekkert búin að blogga síðan um miðjan desember.  Það var bara gjörsamlega brjálað að gera fram að jólum.  Annað barnið mitt á afmæli rétt fyrir jól og því er alltaf afmælisstúss rétt fyrir jól að bætast við stressið.

Náði mér síðan í ágætis magapest rétt fyrir jólin, hélt hreinlega að ég myndi deyja.  En sem betur fer var þetta bara svona sólarhringspest, veit ekki hvort ég hefði meikað að vera svona lengur.

Var sko ekkert að passa mig neitt um jólin í mataræðinu enda sást það alveg á vigtinni.  Vigtaði mig í gærmorgun og hún sagði 82,6 kg.  Átti reyndar alveg von á því að hún myndi fara upp í 84 kg þannig að ég varð bara hissa.  Það á eftir að taka mig nokkrar vikur að ná jólunum af mér en ég veit alveg að það á eftir að takast.

Átakið sem ég byrjaði í akkúrat fyrir einu ári síðan er semsagt hafið aftur eftir gott jólafrí.  Skrapp í ræktina í gær og ætla að púla vel í kvöld líka.


Næsta síða »

Um bloggið

Dóra í átaki

Höfundur

Dóra
Dóra

Rúmlega þrítug tveggja barna móðir sem er komin með nóg af sjálfri sér. Ætla því að reyna að minnka aðeins.

Vigtunartölur
(smella á myndina)

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 4233

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband